01.10.2012
Kjúklinga lasagne

Fyrir 6
Hráefni
500 gr. brytjaður kjúklingur
1 dós  niðursoðnir tómatar
1 dós  tómat púrra
1 ½ msk söxuð steinselja
1 ½ tsk salt
1 tsk basil
Lasagne plötur
2 dósir kotasæla
1 egg
¼ tsk pipar
180 gr Mozzarella ostur
¼ bolli Parmesan ostur

Svona geri ég:

Setjið kjúklinginn á meðalheita pönnu og hrærið af og til í 6 mínútur. Setjið niðursoðnu tómatana, tómatpúrruna, ½ tsk af steinseljunni og 1 tsk af saltinu í blandara og hrærið vel saman. Hrærið blöndunni saman við kjúklinginn á pönnunni og látið malla í u.þ.b. 20 mínútur. Blandið saman í skál afganginum af steinseljunni, afganginum af saltinu, kotasælunni, egginu og pipar.Setjið nú allt í eldfast mót. Fyrst kjúklinginn, þá kotasælublönduna , mozzarella ost, og síðan lasagna plöturnar, aftur kjúkling og síðan parmesan ost. (eða blandið eins og hverjum þykir best)

Setjið í 190° heitan ofn og eldið í 30 mínútur.